Vel heppnað umdæmisþing á Sauðárkróki 18.- 19. ágúst 2023. Vel heppnað umdæmisþing á Sauðárkróki 18.- 19. ágúst 2023.
Föstudaginn 26. maí hélt rótarýklúbburinn sitt árlega makakvöld. Þá var haldið með rútu í Glaumbæ í Skagafirði og gamli bærinn skoðaður. Eftir það var boðið upp á léttar veitingar í Áshúsinu og fengu menn um leið fræðslu um sögu staðarins. Að því loknu var haldið í Hofsstaði þar sem fundur var hald ... Föstudaginn 26. maí hélt rótarýklúbburinn sitt árlega makakvöld. Þá var haldið með rútu í Glaumbæ í Skagafirði og gamli bærinn skoðaður. Eftir það var boðið upp á léttar veitingar í Áshúsinu og fengu menn um leið fræðslu um sögu staðarins. Að því loknu var haldið í Hofsstaði þar sem fundur var haldinn. Páll Snævar Brynjarsson var með rafpóstinn en þar fór hann yfir íþróttaiðkun á Sauðárkrók s.l 50 árin eða svo. Við þetta tækifæri var tilkynnt að Brynjar Pálsson hefði verið gerður að heiðursfélaga í Rótarýklúbb Sauðárkróks. Brynjar gekk í klúbbinn 15. janúar 1970 og gengdi m.a. forsetaembættinu 1977-1978. Hann var síðan nefndarmaður í Króksbókarnefnd ásamt því að vera stjórnandi hins margfræga rótarýkórs. Brynjar var gerður að Paul Harrris félaga 1. júlí 1983.
Fimmtudaginn 20. október var fundur nr. 3.400 frá upphafi haldinn í Rótarýklúbb Sauð...
Á þessari síðu finnur þú algengar spurningar og svör um Polaris. Það er skipt í efn...
Þriðjudaginn 18. apríl var nýr félagi tekinn inn í Rótarýklúbb Sauðárkróks. Hún heit...
Róbert, Jón Þór, Magnús og Knútur. Mynd, Árni Ragnarsson
Fimmtudaginn 2. nóvember fóru rótarýfélagar í kynningarheimsókn í Náttúrustofu Norð...
Ómar Bragi Stefánsson, umdæmisstjóri Rótarý kom á fund fimmtudaginn 9. nóvember.
Valnefnd umdæmisstjóra Rótarý á Íslandi hefur að loknu valferli upplýst að Elísabet ...
Rótarýklúbbur Sauðárkróks var formlega stofnaður 26. september 1948. Í honum eru 23 félagar, bæði karlar og konur. Fundir eru haldnir vikulega, á fimmtudögum í félagsheimilinu Ljósheimum um kl.18:00. Þar koma félagar saman og snæða kvöldverð áður en formlegur fundur hefst. Dagskrá funda er oftar en ekki í höndum starfsnefnda á vegum klúbbsins, en þá eru meðal annars fengnir fyrirlesarar frá fyrirtækjum eða stofnunum bæjarins til að segja frá því helsta sem er á döfinni. Eins flytja félagar svokallaðan rafpóst, en það er 5-8 mín erindi um það helsta sem brennur á viðkomandi. Félagar eru með ýmsa árlega viðburði, s.s jólahlaðborð Rótarý, makakvöld, árshátíð, haustferð svo eitthvað sé nefnt. Tilvalin félagsskapur fyrir þá sem vilja bæði fræðast og hafa áhrif á sitt nærumhverfi og í leiðinni að njóta góðra samveru.
Vel heppnað umdæmisþing á Sauðárkróki 18.- 19. ágúst 2023.