Rótarýklúbburinn færir HSN á Sauðárkróki þrjú þrekhjól að gjöf.

föstudagur, 29. maí 2026

Sólveig B. Fjólmundsdóttir- ritari

Rótarýklúbburinn færir HSN á Sauðárkróki þrjú þrekhjól að gjöf.

Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í heimsókn í aðsetur sjúkraþjálfunar  og endurhæfingar HSN á Sauðárkróki þann 21. maí síðastliðinn.

Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu. Gjöfin í ár eru þrjú þrekhjól, hugsuð fyrir alla þá fjölmörgu einstaklinga sem njóta þjálfunar og endurhæfingar hjá stofnuninni.

Það voru sjúkraþjálfararnir Sveinn Sverrisson, Helena Magnúsdóttir, Árný Lilja Árnadóttir og Fanney Ísold Karlsdóttir ásamt þeim Sigurbjörgu Ólafsdóttur, yfirlækni á Sauðárkróki, Erni Ragnarssyni, yfirlækni á Blönduósi og Kristrúnu Snjólfsdóttur, yfirhjúkrunarfræðingi, sem veittu hjólunum móttöku. Þess má geta að hjólin voru sérstaklega valin af Fanney Ísold og þykja einstaklega góð.

Það er von Rótarýklúbbs Sauðárkróks að nýju hjólin komi að góðum notum en þau leysa af hólmi þrekhjól sem voru virkilega komin til ára sinna.

Rótarýklúbburinn færir HSN á Sauðárkróki þrjú þrekhjól að gjöf