Steinn Leó Sveinsson með kynningu á framkvæmdum hjá sveitarfélaginu.

föstudagur, 24. mars 2023

Jón Þór

Fimmtudaginn 23. mars hélt Steinn Leó Sveinsson sviðstjóri veitu og framkvæmdasviðs hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, fróðlega kynningu á fyrirhuguðum framkvæmdum á árinu. Þar ber helst að nefna stórar framkvæmdir við hafnarsvæðið á Sauðárkróki sem og í Hofsós. Í Varmahlið er fyrirhugað að lagfæra götur og göngustíga sem og stækkun á grunnskólanum. Auknar kröfur um flokkun úrgangs kallar á betri aðstöðu og eru menn byrjaðir á að bæta aðstöðuna í Hofsósi