Heimsókn umdæmisstjóra.

laugardagur, 5. nóvember 2022

Fimmtudaginn 3. nóvember kom umdæmisstjóri Rótarý, Bjarni Kr. Grímsson  í heimsókn í Rótarýklúbb Sauðárkróks. Hann byrjaði að funda með stjórninni og fékk fræðslu um innra starf klúbbsins, stöðu hans og áskoranir. Eftir það fundaði hann með félögum og fór þar yfir stöðu mála. Að fundi loknum fékk hann að gjöf bækurnar Saga Sauðárkróks, eftir Krismund Bjarnason. Umdæmisstjóri færði síðan klúbbnum fána tileinkuðum forseta Rotary International, Jennifer Jones en einkunnarorð hennar eru Imagine. Það var Ingimundur Guðjónsson, ritari sem tók á móti honum fyrir hönd klúbbsins.